Arnar Jonsson Arnar Jonsson

Næsland gefur út lagið “Þrái þig að fá” með Ernu Hrönn

Hljómsveitin Næsand gefur út í dag lagið “Þrái þig að fá” með söngkonunni Ernu Hrönn Ólafsdóttur. Upptökur lags fóru fram í hljóðveri Adda800 undir stjórn Halldórs Gunnars fjallabróður. Lagið var svo hljóðblandað og masterað af Adda 800.

Hljómsveitin Næsland gefur út í dag lagið “Þrái þig að fá” með söngkonunni Ernu Hrönn. Upptökur lags fóru fram í hljóðveri Adda800 undir stjórn Halldórs Gunnars fjallabróður. Lagið var svo hljóðblandað og masterað af Adda 800.

Hljómsveitin Næsland hefur verið starfandi síðastliðin ár og er mest þekkt fyrir að leika fyrir dansi á allskyns viðburðum, árshátíðum fyrirtækja, brúðkaupum osfrv. Meðlimir hljómsveitarinnar koma úr ýmsum áttum, m.a úr hljómsveitunum Landi og sonum, Vinum vors og blóma, Bandmönnum, Santiago, Tappa tíkarass ofl.

Lagið “Þrái þig að fá” er ábreiða af ameríska country/pop smellinum “Need you now” með hljómsveitinni Lady A, en lagið kom fyrst út árið 2009 og hefur notið mikilla vinsælda víða um heim allar götur síðan. Lagið sópaði að sér verðlaunum þegar það fyrst kom út og sat m.a á toppi Billboard country listans í 5 vikur samfleytt. Það sama ár vann lagið einnig Grammy verðlaun fyrir lag ársins. Hefur lagið svo toppað marga vinsældarlista víða um heim. Endurgerð lagsins með íslenskum texta hefur legið í loftinu í smá tíma hjá Næsland, sem svo small saman með tilkomu Ernu Hrannar eftir að hún lék með bandinu á viðburði 2023.

Erna Hrönn er flestum landsmönnum kunnug sem ein af okkar bestu söngkonum, en einnig semur hún íslenska texta lagsins og flytur dúettinn með söngvara Næslendinga, Snorra Erni Clausen.

Meðfylgjandi hlekkur er “teaser” sem gerður var í tilefni útgáfunnar og hlekkur á lagið á Spotify má finna hér

Næsland #verumnaes

Nánari upplýsingar veita:

  • Gunnar Þór Eggertsson: 896-3820

  • Erna Hrönn Ólafsdóttir: 866-1613

Read More